Skip to Content

Aflatölur aðgengilegar á síðunni

Ný síða hefur litið dagsins ljós hér á heimasíðunni okkar þar sem hægt er að virða fyrir sér myndrænt aflatölur frá Skagaströnd. Einnig er hægt að sjá samanburð á lönduðum afla milli hafna við Húnaflóa. Stærstur hluti aflatalnanna er frá árinu 2014 en eitt graf sýnir aflatölur á Skagaströnd frá árinu 2011 til 2014.

Hægt er að fara inn á nýju síðuna með því að smella á efstu myndina (grafið) í dálknum hér til hægri, undir fyrirsögninni „Afli úr Húnaflóa“. Einnig er hægt að smella hér og komast þannig beint inn á síðuna.