Sjávarlíftæknisetrinu BioPol ehf á Skagaströnd var í vikunni sem leið veitt hvatningarverðlaun SSNV atvinnuþróunnar.
Verðlaunin hafa verið veitt til fyrirtækja á Norðurlandi vestra frá árinu 1999 sem hvatning til áframhaldandi starfsemi og viðurkenning fyrir góðan árangur. Jafnframt er markmið verðlaunanna að hvetja til nýsköpunnar og þróunar og vekja athygli á því sem vel er gert á Norðurlandi vestra.
Stjórn og starfsfólk fyrirtækisins vill koma á framfæri kærum þökkum og er ákaflega stollt af þessari viðurkenningu. Hún mjög mikilvæg fyrir félagið og góð hvatning til áframhaldandi verka. Hinum fallega verðlaunagrip verður fundinn góður staður í húsnæði félagsins.
Á myndinni er hluti starfsfólk BioPol ehf með verðlaunagripinn góða.