Skip to Content

BioPol ehf og Háskólinn á Akureyri auglýsa stöðu sérfræðings á Skagaströnd

Laus er til umsókna staða sérfræðings hjá BioPol ehf á Skagaströnd.

BioPol ehf., Sjávarlíftæknisetur á Skagaströnd og Háskólinn á Akureyri óska eftir að ráða sérfræðing á sviði líftækni, líffræði eða einstakling með sambærilega menntun. Umsækjanda er ætlað að stunda rannsóknir og kennslu á sviði sjávarlíftækni. Sérstaklega er horft til rannsókna á örverum. dýra- og plöntusvifi með hagnýtingu í huga. Einnig er viðkomandi ætlað að móta og byggja upp frekari rannsóknir á þessu sviði og leggja grunn að framleiðslu afurða. Starfsstöð umsækjenda verður á Skagaströnd.

Hæfniskröfur:

  • Meistara eða doktorspróf í fyrrgreindum fræðigreinum.
  • Reynsla af rekstri og uppsetningu rannsóknaverkefna.
  • Reynsla og þekking á ræktun örvera/einfrumunga.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.

Umsóknafrestur er til og með 1. ágúst nk. Umsóknir með ýtarlegum upplýsingum um menntun, starfsreynslu og meðmælendur berist BioPol ehf., Einbúastíg 2, 545 Skagaströnd. Hæfi umsækjenda verður metið eftir reglum Háskólans á Akureyri.

Nánari upplýsingar veitir Hjörleifur Einarsson hei@unak.is prófessor við Haskólann á Akureyri í síma 460-8502 og Halldór G. Ólafsson halldor@biopol.is framkvæmdastjóri í síma 452-2977 eða 896-7977.