Skip to Content

BioPol ehf. skrifar undir samning við VeroMara

BioPol ehf. hefur skrifað undir samning við VeroMara í Skotlandi sem snýr m.a að kaupum á sérfræðiráðgjöf og aðstoð við uppbyggingu á rannsóknaraðstöðu til mælinga á þörungaeitri í kræklingi.

Fyrirtækið VeroMara heldur úti viðurkenndum þjónustumælingum fyrir skelfiskræktendur og fiskeldisfyrirtæki. Fyrirtækið er hluti af GlycoMar Limited og er til húsa í the European Centre of Marince Biotechnology í Oban í Skotlandi. Megin styrkur og áherslur fyrirtækisins liggja í rannsóknum í sjávarlíftækni, greiningum á skelfiskeitri og mælingum á ATP-asa virkni í tálknum fiska.

Í mars næstkomandi mun Dr. Charlie Bavington, framkvæmdastjóri VeroMara, koma til Skagastrandar, kynna sér aðstöðu fyrirtækisins og aðstoða við uppsetningu á búnaði til mælinga á þörungaeitri.