Sjávarlíftæknisetrið BioPol ehf. á Skagaströnd var í vikunni formlega boðið að vera aðili að verkefninu NPP WATER sem styrkt er af Norðurslóðaáætlun ESB; NPP (Northern Periphery Programme). Verkefnið miðar að því að minnka þau neikvæðu áhrif sem blómi eitraðra svifþörunga getur haft á kræklingarækt og fiskeldi á jaðarsvæðum.
Það var margt góðra gesta hjá starfsfólki BioPol ehf. í vikunni sem leið í tengslum við þáttöku í verkefninu. Dr. Robin Raine frá Martin Ryan Institute National University of Ireland, verkefnisstjóri NPP WATER, og þeir Dr. Jean-Pierre Lacaze og Guillaume Hermann frá Marine Scotland komu og héldu tveggja daga námskeið. Farið var yfir skjótvirkar mæliaðferðir á þörungaeitri í skelfiski og einnig fræðst um notkun svokallaðra SPATT-poka sem eru einskonar te-pokar sem safna í sig þörungaeitri beint úr sjó.
Meðal helstu markmiða verkefnisins er að finna leiðir til að minnka þá röskun sem verður á uppskeru kræklingaræktenda vegna eiturþörungablóma með því að ná betri stjórn á framleiðslunni. Þeim markmiðum er m.a hægt að ná með áhrifaríkum vöktunaraðferðum, nýrri tækni við vöktun þörungaeiturs í sjó og með notkun spálíkana. Í kjölfarið er stefnt að því að halda námskeið fyrir stofnanir og fyrirtæki um notkun fljótvirkra aðferða við mælingar á þörungaeitri í skelfiski og aðferðir þróaðar svo hægt sé að mæla þessa þætti með staðbundnari hætti en áður hefur þekkst.
Heimasíðu verkefnisisins má sjá hér.