Skip to Content

Endurnýjun samstarfssamnings og formleg opnun rannsóknaaðstöðu

Mikil ánægja hefur verið meðal forráða- og starfsmanna BioPol ehf með farsælt samstarf við Háskólann á Akureyri allt frá stofnu félagsins árið 2007 og hefur sú ánægja verið gagnkvæm. Í ljósi þess hefur nú verið gerður nýr samningur um áframhaldandi samstarf og fjallar hann einkum um rannsóknir og tækniþróun á sviði sjávarlíftækni, matvælafræði og tengdra sviða. Í því felst m.a. að skilgreina ný rannsóknaverkeni en helsti styrkleiki samstarfsins byggir á samlegð mismunandi sérfræðinga og meiri líkum á árangri með stærri rannsókna- og þróunarverkefnum.

Sameiginlegt markmið beggja er að nýta best þá sérþekkingu sem samningsaðilar búa yfir auk þess sem samningnum er ætlað að bæta aðgengi vísindamanna og nemenda HA að sérfræðiþekkingu og aðstöðu BioPol og aðgengi sérfræðinga BioPol að þekkingu og aðstöðu Háskólans á Akureyri. 

Í stjórn BioPol sitja fimm stjórnarmenn og þar af einn frá HA. Með þeim hætti leggur skólinn til verkefnisstjóra með þekkingu á sjávarlíftækni, hagnýtri örverufræði,vinnslutækni matvæla, nýsköpun og atvinnuþróun. Allt frá stofnun BioPol hefur Dr. Hjörleifur Einarsson prófessor við HA gegnt þessu hlutverki.

Samningurinn tilgreinir jafnframt að HA heldur úti stöðu sérfræðing sem staðsettur er á Skagaströnd. Í dag er það Dr. Magnús Örn Stefánsson sem starfar undir merkjum háskólans hjá BioPol. Meginviðfangsefni Magnúsar hafa verið rannsóknir á smáþörungum með hagnýtingu og frekari atvinnuuppbyggingu í huga.

Ný rannsóknaaðstaða 

Í tengslum við heimsókn háskólarektors var jafnfrat tekin í notkun, með formlegum hætti, glæsileg viðbót við rannsóknaaðstöðu BioPol. Við það tækifæri klipptu Stefán B. Sigurðsson rektor og Adolf H. Berndsen stjórnarformaður BioPol á borða við inngang nýju rannsóknastofunnar. Um er að ræða aðstöðu sem er sérstaklega hönnuð með það fyrir augum að geta unnið með þörungaræktir við "sterílar" aðstæður.