Starfsfólk BioPol ehf fékk góðan gest í vikunni. Charlie Bavington framkvæmdastjóri VeroMara í Skotlandi var á Skagaströnd alla síðustu viku til þess að kynna starfsfólki BioPol mismunandi aðferðir við mælingar á þörungaeitri í skelfiski.
Á undanförnum misserum hefur starfsfólk BioPol verið að kynna sér fljótvirkar aðferðir við að mæla mismunandi þörungaeitur í skelfiski. Gert er ráð fyrir að í apríl fari af stað umfangsmikið verkefni sem miðar að því að bera saman fjölda eiturþörunga í sjó og magn þörungaeiturs í skelfiski. Verkefninu er ætlað að skila mikilvægum upplýsingum varðandi vistfræði eiturþörunga við Ísland og tengjast þróun aðferða sem munu nýtast kræklingaræktendum til lækkunar á kostnaði við mælingar á þörungaeitri.
Bjarni Jónasson starfsmaður BioPol ehf. mun næstkomandi föstudag halda erindi á ráðstefnu hjá Skelrækt, hagsmunasamtökum skelræktenda á Íslandi, þar sem m.a. verður gert grein fyrir því sem að Charlie hafði fram að færa.
Frekari upplýsingar um þörungaeitur má finna hér til hægri á síðunni.