Skip to Content

Heimsókn nemenda FNV

Í gær miðvikudaginn 26. febrúar fékk starfsfólk BioPol til sín góða gesti úr Fjölbrautarskóla Norðurlands Vestra. Um var að ræða 35 nemendur sem á opnum dögum völdu að ferðast um sitt heimahérað og heimsækja fyrirtæki og stofnanir. Nemendurnir fengu almenna kynningu á starfsemi BioPol ehf á Skagaströnd og fengu síðan tækifæri til þess að ganga um skoða ýmislegt áhugavert á rannsóknastofu félagsins. Við hjá BioPol erum afar þakklát yfir að fá svona áhugasama gesti í heimsókn og teljum mjög mikilvægt fyrir fyrirtækið að fá tækifæri til að kynna starfsemi sína fyrir svona ungu og frambærilegu fólki.