Skip to Content

Hrognkelsamerkingar 2013

Hafrannsóknastofnun og BioPol ehf Sjávarlíftæknisetur á Skagaströnd eru nú með í gangi tvenns konar merkingartilraunir sem eins og fyrri ár treysta algerlega á samstarf við grásleppusjómenn.

Merktir fiskar voru sprautaðir með efninu oxytetracyclin, sem litar beinvef sem getur nýst til að sannreyna aldurslestraraðferðir. Efnið er fúkkalyf og gerir fiskana og hrognin óhæfa til neyslu um tíma eftir merkingu. Þess vegna fara aðstandendur verkefnisins fram á það við sjómenn sem veiða merkta fiska að þeir komi þeim til BioPol eða Hafrannsóknastofnunar.

Tilgangur merkinganna er annars vegar að sannreyna aldur hrognkelsa og hins vegar að afla upplýsinga um gönguhegðun tegundarinnar með rafeindamerkjum.

Aldursgreiningar:
Í dag má segja að ekki sé til staðar viðurkennd aðferð til þess að aldursgreina hrognkelsi. Aldursgreiningar eru hins vegar lykilatriði þegar kemur að mati á stofnstærð og mikilvægur þáttur í skilningi á líffræði tegundarinnar. Árið 2012 voru 464 hrognkelsi merkt með fjólubláum merkjum (númeruð 10.001-10.485). Sömu fiskar voru einnig sprautaðir með oxytetracyclin sem er efni sem litar beinvef á þeim tíma sem efninu er sprautað í fiskana m.a. kvarnir þeirra. Þegar og ef eitthvað af þessum fiskum veiðast aftur verður hægt að sannreyna eiginlegan vöxt kvarna fiskanna út frá litarefninu og þannig ákvarða aldur. Fyrir merkin verða veitt 1000 króna verðlaun.

Rafeindamerki:
Hafrannsóknastofnun og BioPol ehf hafa í sameiningu fjárfest í 100 rafeindamerkjum frá Stjörnu Odda sem verða sett á hrognkelsi. Merki sem endurheimtast munu geta veitt upplýsingar um staðsetningu einstakra fiska og því varpað ljósi á gönguhegðun tegundarinnar. Nú þegar er búið að merkja 25 fiska en gert er ráð fyrir að merkingum verði lokið í byrjun vertíðarinnar. Til viðbótar rafeindamerkjunum þá eru fiskarnir merktir fjólubláum merkjum eins og sjá má á mynd (númeruð 10.501-10.600). Mikilvægt er að geta þess að fiskarnir voru einnig sprautaðir samskonar efni og getið var hér að ofan. Þar sem svo stutt er liðið frá því að efninu var sprautað í fiskana er EKKI hægt að nýta hrogn þeirra. Fyrir rafeindamerki verða veitt 4000 króna verðlaun.

Mjög mikilvægt er að fiskar sem endurheimtast með fjólubláum merkjum með númerunum sem tilgreind voru hér að ofan eða með rafeindamerkjum séu sendir í heilu lagi til Skagastrandar eða Hafrannsóknastofnunar þannig að hægt sé að lesa af merkjunum og nýta þá til aldursgreininga.

BioPol ehf
Einbúastíg 2
545 SKAGASTRÖND

Hafrannsóknastofnun
Skúlagötu 4
121 REYKJAVÍK


Aðstandendur verkefnanna þakka það góða samstarf sem hefur verið við grásleppusjómenn á undanförnum veiðitímabilum og vona að það geti haldið áfram á komandi vertíð.