Jacob Kasper, starfsmaður BioPol ehf. og Hafrannsóknastofnunar Íslands, hélt þann 4. febrúar síðastliðinn, fyrirlestur á alþjóðlegum fundi um grásleppumál. Fundurinn, sem haldinn var í London, er árlegur viðburður og var nú haldinn í 23. skipti undir yfirskriftinni „Lumpfish Roe Matters“. Fundinn sóttu 30 manns frá 11 löndum og má þar nefna aðila frá hagsmunasamtökum sjómanna, hrognakaupmenn og heildsala. Jacob hélt fyrirlestur undir yfirskriftinni „Fisheries Summary: Lumpfish (Cyclopterus lumpus)“ og fjallaði hann m.a um líffræði tegundarinnar, afla á heimsvísu og ástand stofnsins við Íslandsstrendur.