Starfsfólk og stjórn BioPol ehf bjóða James Kennedy hjartanlega velkominn í hópinn. James er starfsmaður Hafrannsóknastofnunar en er vistaður hjá BioPol á Skagaströnd. Jim, eins og hann er kallaður, er skoti að uppruna og hefur doktorsgráðu frá háskólanum í Liverpool. Doktorsverkefnið fjallaði um fjósemi rauðsprettu í Írlandshafi. Jim hefur verið starfandi í Noregi hjá "Möreforsking Marin" frá árinu 2008 þar sem rannsóknir á grálúðu var hans meginsvið. Helstu áhugamál Jim eru ljósmyndun og fjallgöngur.