Skip to Content

Samstarf við Færeyinga

BioPol ehf. hefur á síðustu tveimur árum staðið fyrir viðamiklum rannsóknum á lífræði, fæðuatferli og vistfræðilegum áhrifum skötusels á grunnslóð. Í tengslum við þær rannsóknir hafa byggst upp sambönd við erlendar stofnanir, þ.m.t. Hafrannsóknarstofnunina í Færeyjum. Á dögunum fór Sarah Nebel, líffræðingur og starfsmaður BioPol í heimsókn til Færeyja þar sem hún m.a. vann að aldursgreiningum á skötusel og ræddi hugmyndir um áframhaldandi samstarf og rannsóknir
Helstu markmið verkefnisins sem BioPol hefur unnið að er að afla þekkingar á lífsháttum, stofnsamsetningu og áhrifum skötusels á vistsamfélög á nýjum búsvæðum tegundarinnar við vestur- og norðurströnd Íslands. Samsetning veiðistofns hefur verið rannsökuð á völdum svæðum við Breiðafjörð, Vestfirði, Húnaflóa auk þess sem áhersla hefur verið lögð á fæðunám skötusels og samspil við aðra nytjastofna, s.s hrognkelsi. Unnið er að birtingu niðurstaðna úr fyrsta hluta rannsóknanna.