Skip to Content

Starfsmaður boðinn velkominn

Stjórn og starfsfólk BioPol býður nýjan starfsmann, Karin Zech, velkominn til starfa hjá félaginu. Karin er fædd í þýskalandi en hefur undanfarin 7 ár starfað í Noregi. Karin er með gráðu í lífefnafræði og starfaði síðast við gæðastjórn og vöruþróun hjá Epax sem er stór lýsisframleiðandi í Noregi. Helstu áhugamál Karin eru gönguferðir, hestamennska og listmálun.