Skip to Content

Uppfærðar aflatölur fyrir árið 2014

Aflatölur á Skagastrandarhöfn hafa verið uppfærðar fyrir desember 2014 og færðar inn á heimasíðu BioPol ehf. Heildarafli, í desember, var nokkru minni en síðustu tvo mánuði á undan, u.þ.b. 1.000 tonn. Þar munaði aðallega um veðurfarið í desember sem gerði það að verkum að ekki voru margir dagar sem hægt var að róa á miðin. Þannig voru aðeins 11 dagar í desember þar sem afla var landað á Skagastrandarhöfn, þar af voru fjórir dagar þar sem aðeins einn bátur landaði.

Nú má einnig sjá samanburð á lönduðum afla síðustu fjögurra ára á Skagaströnd, árin 2011-2014. Árið 2014 var áberandi lakast hvað varðar ferskan afla en var á pari við árið 2011 þegar kemur að frosnum afla.

Hægt er að skoða aflatölurnar með því að smella hér eða smella á tengilinn "Afli úr Húnaflóa" hér til hægri.